|
Glasgow og Edinburg
Fyrir 1580 dögum
Dagsetning
29. janúar 2012
|
15.10.2007 13:04:11 / alexandra
Ég lagði af stað í Skotlandsferð ásamt Völu svölu, Helgu systir hennar og Baddý í þar síðustu viku. Við lögðum af stað eldsnemma á þriðjudags- morguninn og versluðum smá í fríhöfninni. Flugið tók bara 2 tíma sem er algjör lúxus en í staðinn fékk ég skrítinn kall sem sat við hliðiná mér og var alltaf að pikka í öxlina mína!! og við fengum líka viðbjóðslega salt ommilettu sem var ekki ætanleg En þegar við komum til Glasgow hélt leiðin beint út á lestarstöð og til Edinborgar. Í lestinni sátum við Vala hliðiná bandarískum hjónum sem héldu að við værum þjóðverjar en þegar þau komust að því að við værum íslendingar þá spurði konan sem var nótabene enskukennari hvort að enskan væri móðurmál okkar, við nottla hlógum eins og hálfvitar með íslensku enskuna okkar og leiðréttum kellinguna. Ætluðum ekki að trúa að menntaður ensku kennari gæti ekki heyrt hvað við töluðum ranga ensku. Þegar við komum til Edinborgar lá leiðin okkar upp á hótel þar sem við vala fengum minnsta tveggja manna rúm í heimi og gólf með myglu á mér hryllti og vældum við í hinu stelpunum sem voru í 3ja manna herbergi hrumpf! Þennan dag eyddum við í að skoða Edinborgar kastala sem er alveg gullfallegur, fá okkur hádegismat, lenda fyrir geitunga árás og fara svo út að borða á indverskan veitingastað þar sem ég drakk alveg 5 L af vatni því ég er svo mikill aumingi þegar ég borða sterkan mat. Ákveð að tala ekkert um þessar myndir af mér og Völu hérna fyrir ofan en við áttum mikið af umfram eyðslu tíma á söfnunum í kastölunum svo við ákváðum að nýta tímann í eitthvað sniðugt....... Á miðvikudeginum fórum við í hálandaferð um Skotland sem tók 12 klukkutíma og keyrðum við út um allt og sáum fullt af lochum (stöðuvötnum) og skógum og kastölum. Hápunktur ferðarinnar var samt að skoða LochNess þar sem Nessie skrímslið á að vera en okkur til mikilla vonbrygða þá er það ekki til En þetta var samt mjög gaman því við fórum á siglingu í vatninu og skoðuðum kastalarústir sem eru við vatnið. Í ferðinni var alveg æðislega skemmtilegur fararstjóri sem ég held að Baddý hafi bara kolfallið fyrir enda voru Helga og hún alltaf að spurja hann að einhverju sniðugu... litlu fararstjórasleikjurnar Um kvöldið var svo djammað og kynntumst við klikkuðum Íra sem hét Damien og Tom sem var frá Edinborg, skemmtilegir drengir þar á ferð og ein úr hópnum týndist og skellti sér á diskótek með 17 ára strákum.   Svo skelltum við okkur til baka til Glasgow og fórum á tónleika með Damien Rice sem voru æðislega skemmtilegir og hef ég ekkert um það meira að segja en að ég gerði mig að fífli fyrir framan íslenska stelpu og vil helst bara gleyma þeim atburði sem fyrst tíhí !! Síðustu dagarnir einkenndust af verslun og verslun og meiri verslun. Ég náði að kaupa skólaföt á mig og nokkra skó, jólagjafir handa nokkrum og endalausu úrvali af dvd myndum veiveivei. Þetta var hin ágætasta ferð þó ég segi nú sjálf frá og er Edinborg orðin ein af uppáhalds borgunum mínum... Er samt ekki að fýla Glasgow of vel þar sem mér finnst hún ekki heilla mig jafn mikið og Edinburgh
»
23.07.2007 20:00:59 / alexandra
Æðislegur brandari
sem ég fann á netinu !!!!!!!!!!!!1
Bakaðar
baunir
Dag einn hitti ég yndislegan herramann og við urðum ástfangin.
Þegar það varð ljóst að við myndum giftast ákvað ég að fórna því
sem ég hafði mikið dálæti á. Ég hætti að borða bakaðar baunir.
Einhverjum mánuðum seinna, á afmælisdaginn minn, og ég var að fara
heim frá vinnu, bilaði bíllinn minn.
Þar sem ég bjó út í sveit hringdi ég í manninn minn og sagði honum
að ég kæmi seint þar sem ég þyrfti að ganga heim.
Á leið minni heim gekk ég fram hjá litlu veitingahúsi og lyktin af
bökuðum baunum var meiri en ég gat staðist.
Þar sem ég átti eftir að ganga nokkra kílómetra áður en ég næði
heim reiknaði ég það út að ég myndi ganga af mér þá kvilla sem
fylgdu því að borða bakaðar baunir áður en ég kæmi heim. Svo ég
stoppaði á veitingahúsinu og áður en ég vissi af hafði ég klárað
þrjá stóra skammta af bökuðum baunum.
Alla leiðina heim fullvissaði ég mig um að ég hefði losað mig við
allt gas sem fylgir slíkri græðgi.
Þegar heim var komið tók eiginmaður minn spenntur á móti mér og
sagði: "Ástin mín! Ég ætla að koma þér á óvart við
kvöldverðarborðið."
Hann batt síðan slæðu fyrir augun á mér og leiddi mig að stól við
borðið.
Ég fékk mér sæti og rétt í því sem hann ætlar að leysa frá augunum
á mér, hringdi síminn.
Hann lét mig lofa því að ég myndi ekki kíkja fyrr en hann hefði
afgreitt símtalið og svo fór hann til þess að svara í símann.
Bökuðu baunirnar sem ég hafði innbyrt voru ennþá að hafa áhrif á
mig og þrýstingurinn var að verða óbærilegur. Svo að á meðan
eiginmaðurinn var í öðru herbergi notaði ég tækifærið, lét allan
þunga minn hvíla á annarri rasskinninni og hleypti einu skoti
út.
Það var ekki eingöngu hátt heldur lyktaði það eins og
gúanóverksmiðja.
Ég tók servíettuna úr kjöltu mér og notaði hana sem viftu.
Svo lyfti ég mér upp á hina kinnina og skaut þremur í viðbót.
Lyktin var verri en af soðnu káli.
Þessu hélt ég áfram í fimm mínútur í viðbót á meðan ég hlustaði
gaumgæfilega á samræðurnar sem fram fóru í hinu herberginu.
Ánægjan var ólýsanleg eða þar til kveðjuorðin í hinu herberginu
bundu enda á þetta frelsi mitt. Ég loftaði í flýti í kringum mig
með servíettunni, lagði hana síðan í kjöltu mér og kom höndunum
fyrir ofan á henni og hugsaði um hversu vel mér liði og hversu
ánægð ég var með mig.
Andlit mitt hlýtur að hafa sýnt mynd sakleysis þegar eiginmaður
minn kom aftur og baðst afsökunnar á því að hafa verið svona lengi
í símanum.
Hann spurði mig hvort ég hefði nokkuð svindlað og kíkt en ég
fullvissaði hann um að það hefði ég ekki gert.
Þegar hér var komið sögu tók hann slæðuna frá augum mér og tólf
kvöldverðargestir sem sátu í kringum borðið hrópuðu:
"Til hamingju með afmælið!"
»
06.07.2007 17:26:27 / alexandra
loksins loksins loksins er ég búnað losna undan klúðrunum
stúdentaferða og loksins fékk ég styrkinn minn sem ég átti að
fá í byrjun JÚNÍ !!!!!!!!!!!!!!!!! eftir langa bið og mikla
skuldir er ég hamingjusamasta manneskjan í heiminum sem
skuldar ekki neitt (væri nottla hamingjusamari ef ég ætti
íbúð og bíl but who caaaaaaaares!! )
Í
tilefni þess að ég gat greitt foreldrunum allt lánið þá fengu þau
rauðar rósir og konfekt svo rómó, ég borgaði 2 vísa reikninga
bankanum til mikillar hamingju og ég ætla kaupa mér mjög þráða
tölvu sem ég er búnað bíða eftir, þar sem ég er að nota fartölvu
síðan örugglega 95 og tilheyrir ísöldinni 
en hér
er gimsteinninn : T60 IBM sooo hot
Svo kem ég heim
suður þar næstu
helgi, s.s. ekki núna um helgina heldur næstu og ætla að
taka þennan (að neðan) með mér víhíhí hlakka svo til, stelpur
við verðum að grilla saman it´s so much fun og ætlum að fara á
harry potter og bjóða elskulegu systur minni sem er að fara til
israel með og svo nottla mega fleiri koma með sem vilja

eeeen veit ekki hvað ég á að skrifa
meir í bili... love ya´ll bæbæ

p.s. vil bara
minna hve fab eg er a myndinni!!
»
18.06.2007 23:08:42 / alexandra
var að stofna nýja
myndasíðu þar sem spaces.live síðurnar eru eitthvað að klikka,
samt bara nokkrar myndir komnar inn en þetta kemur smátt og
smátt 
annars er nýjasta nýtt að ég er víst hætt við
danmerkuferðina þar sem Afí vinur getur ekki komið og hitt mig í
köbenhavn, en í staðinn mun ég fara með Völu og systur hennar á
Damien Rice tónleika í Glasgow og ég er alveg mega spennt fyrir að
fara í skvísuferð og versla og versla og versla... svo eru þær líka
búnað lofa mér að það sé h&m þarna so why do i need
copenhagen... píff við kaupmannahöfn sorry rósa :* love
ya
Annars á ég afmæli bráðum og er mega spennt því ég fékk
upp í síma frá pabba og mömmu og fékk mér geggjað flottan motorolla
V3im vínrauðan I absoluetly loooooooove it. Kem suður 29 júní á
flotta kagganum hans kalla tilbúin í partýgírinn og vona að það
verði bara mega stuð á okkur stelpunum 
ætla vera svona :
Anywhoooos ... nýja myndasíðan er:
»
11.06.2007 19:52:33 / alexandra
Síðustu dagar á
sigló hafa verið busy busy, einhver fór að veiða risa "fiska"
inn í Eyjafirði eins og eitthvað villidýr sem baðaði sig upp úr
blóði og kyssti risa "fiskinn" má víst ekki segja
nafnið á því þar sem þetta er heldur ólöglegt

Svo er ég búnað lenda í einhverjum svaka
geitungahasar! Ég lá inn í lofttæmda herberginu, steinsofandi undir
sænginni með lokað fram og alles svo það var alveg skordýra safe en
neinei ekki alldeilis. Klukkan 4 um nóttina finn ég fyrir einhverju
sem er að reyna að skríða inn í eyrað á mér og ég vakna og slæ frá
mér leið og það fer INN í EYRAÐ á mér... svo sofna ég aftur, svo
smá síðar finn ég eitthvað setjast oná nebbann minn og sé að þetta
er RISA geitungur sem er bara búnað taka sér bólfestu á mér ... OJ
BARASTA, ég svoleiðis fríkaði og öskraði og næstum bara grét við að
þetta kvikindi hefði getað verpt inn í eyrað á mér búhúhú en
allt endaði vel því pabbi gamli kom og bjargaði litlu sætu
alexöndru sem gat samt sem áður ekkert sofnað aftur vegna
hræðslu...
ojojoj inn í eyrað!!
Annars er ég bara búnað vera bankast og svona,
fór reyndar í útskriftir suður til Helmu og ætlaði nu að hitta
elínu en hún bara var í sinni eigin útskriftarveislu og ég kom líka
svo seint í bæinn, en það var alveg æðislega gaman og takk fyrir
mig helma :* líka geggjað að kíkja niður í reyklausa bæinn og dansa
smá inn á kúltúra og soliðis 
anyways, ætla bara birta smá óþarfa fróðleik um
mig og bráðum ætla ég að skella á netið myndum síðan á villimanna
veiðunum og svoliðis meira jafnvel fæ ég mér svona 123.is síðu
því það er víst orðið svo tööööffff... see ya
1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
kl 6:50 virka daga svo get ég nú verið döldið morning person um
helgar segjum 10 leitið ....
2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI
ÞAÐ?
Johnny Depp, myndi vilja sleikja af honum spælt egg og beikon

3. GULL EÐA SILFUR?
silfur
4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Pirates of the carrabian 3 .. at worlds end held ég að hún hafi
heitið..
5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTUR ?
Grey´s Anatomy og House
6. HVAÐ BORÐARÐU Í HÁDEGINU ?
uuu uuu undafarið bara herbó sjeik
7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR?
fljúga og reka mitt eigið fyrirtæki
8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
nehei, með minnstu tungu í geimi 
9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
ætli það sé ekki bara ég sjálf, hef eiginlega ekki
guðmund..
10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
balúúúla
11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA?
Í augnablikinu er það sveitasælan eða borgin sko
12. SUMAR EÐA VETUR?
sumar
13. UPPÁHALDS ÍS?
vanillu mmm gamli ísinn í vesturbænum
14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
salt
15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
heitir litir, (rauður,bleikur,appelsínugulur)
16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
gamli corollu kagginn minn... i miss it
17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
ost og skinku
18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
í frí ? um prag
19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTUR ÞÚ?
fólk sem lýgur
20. UPPÁHALDSBLÓM?
rósir og sólblóm
21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVAÐ ÞÁ ?
myndi kaupa mér draumaíbúðina sem ég fann á netinu og kaupa mér
nýjan síma og fara til úútlanda, helst prag eða dublin.
22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
bæði betra 
23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
norðan: ljósgrátt
sunnan : grænt og hvítt
24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI
ÞINNI?
2
25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
í sætri íbúð með fallegum svölum, voffanum mínum og böbblu
baðinu
26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
was?
27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
föstudagur
28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
hvítvín, ískalt
29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Það var æði vinirnir komu á sigló og héldum heila afmælishelgi
fórum að djamma, grilla, spila, sigla, í litla skóginn okkar og
upp í hús og dönsuðum eins og fífl hérna heima var svooooooo
gaman .......
h30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei
31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?
vil helst bara láta það koma mér á óvart 
32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN?
skemmtileg tónlist ... aka JT
33. ERTU FEMINSTI?
já
34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU?
bakið, rassinn og axlirnar..
35. ELSKARÐU EINHVERN?
já mjög mikið
35.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR ÞETTA:
miss lady stardust.. með fallegasta bros í geimi 
FRÁ HVERJUM ERU MINNSTAR LÍKUR Á AÐ ÞÚ FÁIR ÞETTA SENT TIL
BAKA?
uuu uu VÖLU.
HVER HELDURÐU AÐ VERÐI FYRST/UR TIL AÐ SENDA ÞÉR ÞETTA TIL
BAKA?
held nú að það séu ekki margir 
»
29.05.2007 08:16:17 / alexandra
Jæja, þá
er mín komin heim eftir næstum 7 mánaða dvöl í Vínarborg. Er
samt búnað vera hérna á Íslandi í næstum tvo mánuði en hef bara
ekki nennt að blogga 
Loksins
fékk ég vinnu eftir miklar áhyggjur og er farin að vinna á
Siglufirði í bankanum þar og orðin mjög ljóskulegur gjaldkeri að
mínu mat tíhí svo er bara lífið orðið alveg eins og áður en ég
fór út. Mjög lítið breyst finnst mér nema ég nottla er alveg komin
á pikkfast og mér finnst það bara æðislegt enda um góðan gæja að
tala um En vinahópurinn er svona nokkurn vegin svipaður en það
skrítnasta er að þegar ég kom heim þá fannst mér nákvæmlega ekkert
hafa breyst maður myndi nú halda að það væri byrjað að slúðra um
annað fólk en það er ennþá sama slúðrið og var fyrir sjö mánuðum
hehe Sem er bara fínt svo lengi sem þið farið ekki að slúðra um
mig, enda ekkert mikið til að slúðra um 
hvað er
nýtt, hvað er nýtt ..... hmm, já well ég er flutt út á land
og orðin ein af illalyktandi sveitalubbunum sem stara á aðra
bæjarbúa út um eldhúsgluggann og bakar snúða. Aðal áhugamálin eru:
harmónikkuspil, rás 1, rúnta 2 min langa laugarveginn og horfa á
fiskiskipin koma inn... veivei! NEI bara plat en þetta er
samt nálægt því, tek allavegana 20 laugarvegi á dag eins og vala
myndi halda, en ég þarf nottla að gera það fótgangandi því mins er
bíllaus hehe 
Annars er
ég bara búnað vera á króknum alla daga sem ég er í fríi síðustu 2
mánuðina og búnað kynnast ágætu vinunum hans Kalla, já hann
útskrifaðist síðustu helgi, þrefalt húrra fyrir honum : húrra húrra
húrra

útskriftarstrákurinn gaman gaman
Annars er
ég að fara koma næstu helgi suður vonandi því Helma og Elín Arna
eru að fara útskrifast líka avúhúhú til hamingju stelpur!!!! Svo
á föstudeginum verður mikið djammað mikið fjör og vonandi farið
niður í bæ að tjútta veivei, búnað sakna Reykjavik soldið mikið sko
en þangað til næst (og vonandi líður ekki of langur timi þangað
til næst)
Auf
wiedersehen, bis bald!
»
21.03.2007 11:57:01 / alexandra
»
20.03.2007 10:07:00 / alexandra
Ég er
að koma heim eftir 15
daga!!!!!!!!!!!!!! avúhúhúhúhúhú ég er svo
spenntur, byrjaði að pakka smá í morgun og strax komin með 10
kíló og varla byrjuð en vonandi reddast þetta undir 30
kílóunum ! ætla blogga í kvöld eða á morgun um
tónleikar/helgarferðina til prag um síðustu helgi!!
»
14.03.2007 10:12:53 / alexandra
Eva systir, btw sú
besta í HEIMI, kom síðustu helgi til mín í
heimsókn frá miðvikudegi til mánudags... ég var búnað bíða svo
dauð spennt að ég losnaði bara við svaka söknuð og heimþrá
leið og hún kom sem var æði þar sem ég er búin að vera mjög
niðri síðustu 3 vikur. En núna ætla ég nú að skrifa
ferðasöguna okkar þar sem við vorum með svaka skipulagða
dagskrá allan tíman enda er ég ekki þekkt fyrir annað en
skipulag... tíhíhí
Miðvikudagur:
Eva
kom um kvöldið og eftir að hafa þurft að bíða þar sem það var
seinkun á fluginu má vel skilja að ég var orðin frekar óþolinmóð og
eina sem ég hugsaði var "hvar er systir mín, má alveg skilja þessa
amish kalla eftir inn í flughöfninni geta þeir ekki bara týnt
töskunum helvítis fíflin" mjög fallega hugsað af mér en já ég var
frekar spennt eftir að fá hana sem er nottla bara skiljanlegt og
svo loksins sá ég í hvíta kollinn hennar og fór bara að hágráta
þegar ég fékk að knúsa hana og réð bara ekkert við tárin mín
búhúhú ég er farin að vera eitthvað viðkvæm hérna
Ég
hélt kúlinu alveg svakalega þegar ég var að reyna rata "ódýru
leiðina" heim af flugvellinum, enda er ég víst Krabbi, og spurði
lestarstjórann hvort að þessi lest væri að fara til miðbæ
BERLÍNAR.... roðnaði svo niður í rassgat eftir að hafa sagt þetta
og búið í 5 mánuði í Vín, asninn sjálfur. En já við skelltum okkur
inn í lestina og mjög fínt en mér tókst að taka okkur einu stoppi
of snemma út úr lestinni þannig að við enduðum á að þurfa taka auka
strætó og lest til að komast heim hehehe... en allt endaði vel og
eva fékk að kynnast öllu eiturlyfja pakkinu í undergroundinu á
leiðinni heim. Svo kom hún færandi hendi með gjafir frá foreldrunum
og íslenskar súkkulaði gjafir frá bónus namminamm vakti mikla
lukku á þessu heimili. Og svo var nottla farið á barinn því það er
víst aðal áhugamál hennar þessa dagana eða bara ALLA
dagana.....
Fimmtudagur:
Á
fimmtudeginum var því miður rigning þannig að við ákváðum að eyða
deginum í verslunarleiðangri Við skelltum okkur í h&m og
löbbuðum inn í flest allar búðirnar á Stephans Platz sem var mjög
gaman, hún fékk að sjá fínu verslunargötuna með öllum merkabúðunum
en þar sem hún var mesti túristinn á svæðinu vildi ég ekki taka
hana inn í þær tíhíhíh en við náðum að kaupa alveg fullt af
dóti þann dag, ég keypti mér: skó, tígrisdýra nærföt haha it was
fun talaði meira segja evu inn í að kaupa sér svona og ósk á alveg
eins geggjað töff að vera 3 alveg eins.... og svo keyptum við boli
... endalaust mikið af bolum. Hélt að við gætum ekki verslað meira
en annað kom í ljós daginn eftir Við skoðuðum Hofburg höllina og
Ráðhúsið og ég sýndi henni fullt af fallegum byggingum og allt sem
útlendingarnir skoða þegar þau eru hérna.
Um
kvöldið bauð Eva mér á TGI Fridays !! og fengum við okkur dýrindis
kvöldmat með tilheyrandi bjór og risa stóra kokteila í eftirrétt...
ég drekk vanalega ekki mikið hérna úti en hún náði bara einhverju
dýri út ur mér. Fékk mér hvað um 2 lítra af sex on the beach
drykknum og hann var svo góður jömm og við vorum komnar í frábært
stuð þarna inni með þjónin sem hatar mig og ég var bara farin að
ýminda mér að ég sæti þarna ein á borðinu, fannst eva alltaf vera
að fara frá mér en hún var samt alltaf þarna ANYWAYS... svo fórum
við á Salm Bräu svo Eva gæti séð vinnustaðinn minn og líka til að
sækja Ósk til að koma djamma Eva fékk sér fræga bjórinn þarna en
þar sem ég má ekki drekka neitt þarna og allir þjónarnir koma fram
við mann eins og fífl þá fékk ég ekki einu sinni
kranavatnsglas!!!!!!!!!!!!!!! ég varð ekkert smá fúl en nennti ekki
að böggast lengi yfir því svo við skelltum okkur bara niður á
CHARLIE P´S!!! sem er nottla besti staðurinn til að tjilla saman á.
Þar kynntist Eva honum Colin sem fór að gefa henni undir fótinn
hahaha (btw hann er 8 árum yngri) og ég alveg skemmti mér
konunglega yfir því nottla og svo komu 2 ítalar að spjalla við
okkur og voða gaman Eva fékk líka að kynnast Ósk þá og svona
svo komum við heim um 2 leitið og fengum okkur þrist og fórum allar
að lúlla.

Föstudagur:
Á
föstudeginum reif ég upp lýðinn með tilheyrandi látum þar sem var
komið geggjað fínt veður og Eva skellti sér nottla í túrista
jakkann sinn og þrömmuðum við í gegnum Vín. Skoðuðum aftur Ráðhúsið
og fórum í garðinn og Háskólann, listasöfnin, Hofburg aftur og
fórum inn í Keisaraíbúðirnar og fengum að skoða hvernig þeir bjuggu
og fötin þeirra og svona... voða gaman upp að ákveðnu marki en
við vorum orðnar svo þreittar og svangar að við bara urðum að
skella okkur á mcdonalds og fá okkur sveitta máltíð namminamm. Svo
var haldið niður á MARIEHILFERSTRASSE og það er alveg risa stór
verslunargata (þó mér finnist hin skemmtilegri) en þar náðum við að
eyða alveg 7 timum í að versla og náðum bara að labba hálfa götuna
þar sem við vorum með fullar hendur af pokum og dauð þreittar eftir
að máta tonn af fötum en það var geggjað gaman !!! Svo fórum við
heim og skiluðum af okkur pokunum og gerðum okkur pínu lítið sætar
aftur og fórum út að borða í boði Evu aftur ... eins og ég sagði
áður besta systirin í heiminum... og fórum á geggjað góðan ítalskan
veitingastað þar sem brjóstapervertinn vinnur. Brjóstapervertinn er
þjónn sem horfir á öll brjóstin sem labba inn, karlmans og
kvenmansbrjóst og systir mín var víst í smá flegnu og ég ekki
þannig að hún fékk bara afgreiðslu og ég þurfti alltaf að kalla á
pervertinn og næstum því toga í hann til að ég gæti fengið að borða
hhehehe en það var samt alltílæ fengum sko góða pizzu! Svo
man ég ekki alveg hvað við gerðum meira þetta kvöld en ég held við
höfum farið snemma að sofa eða um 1 leitið... enda var svo mikið að
gera daginn eftir
Laugardagur:
BRATISLAVA
Á
laugardeginum rifum við okkur upp úr rúmunum og skelltum okkur
þrjár: ég eva og ósk, til Bratislava í Slóvakíu. Heimsku þær létu
mig leiða leiðina niður á lestarstöðina og tók ég þær á Westbahnof.
En þegar við vorum búnar að koma okkur þangað þá stóð ég á miðju
gólfi snéri mér að þeim og sagði : FOKK við eigum að vera á
Südbahnof... það sem eva hefur lært af þessari ferð er að aldrei
treysta mér til að stjórna leiðininni!! hehehe þannig að við
þurftum að eyða hálftíma í því að krossa yfir Vínarborgina og
komumst á Súdbahnof og keytum okkur miða til Bratislava. Svo vorum
við komnar í borg kommúnistablokkana og absinth drykkjana og
skelltum okkur í að skoða gamla bæinn ( the center) sem ég hafði
bara ekki séð þegar ég fór síðast enda vorum við bara upp við
höllina... BIG MISTAKE... gamli bærinn er svo fallegur minnti mig
bara á Praque sem er svo falleg Við fórum í svona túristaguide
bíl sem keyrði okkur hring um borgina í hálftima og það var bara
svaka stuð þar sem spólan sem var spiluð sem sagði frá byggingunum
var greinilega gerður fyrir fulla túrista sem lífgaði mjög upp á
útsýnisferðina En eftir hana þurfti einhver svo svakalega að
pissa þannig að við ákváðum að skella okkur inn á Mexico-skann
veitingastað og fá okkur að borða og drekka og svona... hann hét EL
DIABLO. minnir mig og bara svona til skemmtunar þá hét striparinn í
Portúgal sem sveiflaði sér svona glæsilega utan um Ester el diablo
hahahaha good times. Við skelltum okkur þarna inn og ég fékk
einhvern ostarétt sem var já bara OSTUR oj bara! algjör
viðbjóður!!!!! en stelpurnar voru með geggjað góðan mat svo ég var
alltaf að kroppa í hann namminamm. Við fengum okkur nokkra bjóra
frá slóvakíu og svo enduðaði ég á að plata stelpurnar til að fá sér
ABSINTH múhahahahahahhaa! mér fannst ég svo klár!!
en ég endaði nottla á sjálf að þurfa drekka absinthið búhúhú ...
en já þetta absinth gerði alveg út af okkur btw til að minna á þá
var það 80 % áfengi jisús kristur... held ég nú að foreldrarnir séu
stoltir þegar þeir lesa þetta haha En þetta gerði okkur bara
ennþá háværari og ég held að þjónninn hafi farið að vera hálf
hræddur við okkur en við skildum eftir gott þjórfé. En þetta var
svaka stuð. Við urðum bara ruglaðar og á lestinni heim alveg
skítþunnar eftir að við sofnuðum allar og einhver byrjaði að hrjóta
.... ÞETTA ER SJÚKDÓMUR FÓLK hahahha ... Eftir á skelltum við
okkur á Fridays svo eva gæti fengið frosnu margarítuna sína en ég
hélt mig bara í kókinu þar sem ég hafði bara orðið eitthvað kexuð
af absinthinu fyrr um daginn.... svo fórum við bara heim á
Kastnergasse.

Sunnudagur:
Ég
þurfti því miður að skella mér í vinnuna, en evu tókst að skoða
borgina og charlie p´s á meðan.. gott hjá henni En svo seinna um
kvöldið fórum við aftur á brjóstaperra staðinn og hann var að þjóna
okkur aftur til borðs kallinn en nú var Ósk komin í hópinn og hann
starði óspart a hana .. greyið stelpan haha en við vorum bara
rólegar þetta kvöld og horfðum á mynd saman og fengum heimsókn frá
Colin og eva pakkaði saman og seinna um nóttina lagði hún af stað
til Íslands
En
þetta voru frábærir dagar og ég vona að Eva hafi skemmt sér
konunglega í ferðinni og er hún með flest allar myndirnar heima á
íslandi svo þær koma ekki inn hjá mér fyrr en um páskana 21
dagar í að ég komi heim !! avúhúhú
Næstu
helgi erum við Ósk svo að fara til Praque á
Incubus tónleikana! svaka stuð og erum að deyja úr
spenningi.
En
þetta var örugglega lengsta blog sem ég hef skrifað og vona ég að
þið nenntuð að gefa ykkur tíma í að lesa það... Sakna
ykkar
»
09.02.2007 16:23:13 / alexandra
»
17.01.2007 13:15:08 / alexandra
Sæl ég er
mætt aftur á svæðið! 

Ég vil hér með afsaka blogg
letina á mér en það stafar af djammi, svefni, vinnu, vináttu og
heimþrá.... EN nú er ég komin aftur veivei, og ætla skella smá já
segjum bara samantekt.
Ísland
21.desember - 3.janúar.
Ég flaug í gegnum danmörku
21. desember og eftir 10 tíma ferðalag eða svo kom upp seinkunn á
vélinni og við vorum veðurteppt í smá tíma í danmörku ekki gaman
þar sem maður var að reyna drífa sig allra mest að komast til
Íslands eftir 3 mánaða fjarveru! En allt fór á góðan veg og ég
þurfti ekki að lenda á Egilsstöðum og hitti elskuna mína út á
flugvelli og svo Evu systir heima og knúsaði þau bæði í gegn. Það
var mjög gaman Daginn eftir héldum við Vala og Guðrún í okkar
árlega jólabíltúr sem var geggjað stuð og keyrðum við eins og
vanalega upp á arnarnesið að skoða tröllstóru húsin en ég verð að
segja að þau hafa verið eitthvað að spara jólaskrautið þetta árið
og stóðu þau ekki undir væntingum piff... en hins vegar var
jólaskrautið í miðbænum að gera svaka góða hluti svo fékk ég
geggjað gott jólakonfekt frá pabba og mömmu hennar Völu og
vil ég þakka góða gjöf Svo var maður bara njóta lífsins í
Reykjavík þann dag og heilsa upp á gott fólk. Svo fórum við Kalli
og Eva norður á Þorláksmessu, og var Eva ekki mjög spennt yfir að
vera lokuð inn í bíl með turtildúfum í fjóra tíma enda hef ég bara
ekki kynnst jafn biturri manneskju eins og henni eins og hún var um
jolin haha en ég held að þetta hafi bara verið ágætis bíltúr fyrir
hana 
Svo voru það jólin á
Siglufirði og það var náttúrulega geggjað eins og hin síðustu 2 jól
þar, nema það vantaði jólasnjóinn en ekki gat ég kvartað! Nokkrar
myndir úr þeirri ferð:


Eftir nokkra daga þar þá fór ég
á Sauðarkrók og var þar í nokkra daga mjög áhugavert sko! ekki
nóg að ég er orðin sveitalubbi frá siglufirði þá er ég farin að
skella mér á krókinn líka! (enda var ég mikið skömmuð af
siglfirðingum... but who cares) og það var stuð! Hitti vini hans
Kalla og var já eina stelpan í því partý, mjööööög spes eins og við
vala myndum orða það en gaman að fá að hitta þá. Svo var maður
bara í kósý fýlingnum þarna á náttfötunum mest allan daginn enda
vandaði mig kvíld eftir allt þetta ferðalag og evrópureisuna


Svo var haldið aftur út á
Seltjarnarnes 29. desember til að fara djamma og djamma og djamma,
og var afmæli hjá Rósu, Helmu og Guðrúnu þann 30. desember og
það var GEGGJAÐ STUÐ!!!!!!!! Það var svo gaman að hitta alla vini
sína aftur á einum stað að ég bara fór yfir um enda fór ég á
hátíðnina nokkuð oft þetta kvöld og knúsaði fólkið í bak og fyrir
enda vissi ég að það gætu liðið aðrir 3 mánuðir aður en ég hitti
sumt af þessu liði piff en vá það var ógó gaman! fara
aftur á trúnó með stelpunum, sjá hnakkana 3, þó að einn af þeim er
búnað eldast þó nokkuð upp úr því, nefni engin nöfn Svo var bara
farið að dansa á fullu og hressó og svo endaði á KÚLTÚRA, hvar
annars staðar og sötrað síðasta bjórinn og tekinn svo leigubill
heim very nice!


Já það var geggjað stuð í þessu
afmæli á café Victor! Svo kom gamlárskvöld og var fyrst fínt
matarboð með fjölskyldunni og svo kom hún Begga okkar í heimsókn og
tókum við kalli evu og beggu í rassgatið í partý og co!! wamm bamm
búmm sko ég er best! haha og horfðum á skaupið sem mér fannst
bara ágætt enda er það alltaf jafn lúðalegt. Fórum upp í perlu
kl 24 til að horfa á klikkaða flugelda út um allt og svo
skelltum við okkur til frændsystkina minna í smá stund til að horfa
á þeirra flugeldasýningu og það endaði svoleiðis að það kveiknaði í
hárinu á einhverri gellu því þetta var bara maniac mikið af
flugeldum var mjöööög flott og rosa gaman afi minn var líka
slatta "hress" þetta kvöld til mikillar skemmtunar hjá evu
haha! en allt er gott sem endar vel afi minn veit þú lest
þetta! Svo enduðum við bara í vina hitting hjá Björney og var hún
með klassa snittur og allskonar kræsingar í boði namminamm


(skemmtilegt hvernig hákon og hildur náðu að troða sér
þarna hahaha )
En já jólin heima á ÍSLANDI
voru æðisleg sárt að þurfa að kveðja alla vini sína aftur, en
svona er lífið. Á hvað ca. 80 daga eftir hérna úti og verð að reyna
nýta þá þegar ég á pening. Enda er ég í frekar mikilli skítavinnu
eins og þeir nánustu vita um....
Búnað vera núna úti í Vín í
2 vikur og þetta er bæði búið að vera mjög gaman og rosalega erfitt
en ég sem betur fer er búnað kynnast 2 æðislegum stelpum hérna
sem heita Ósk og Helga og koma frá ÍSLANDI veiveiveivei !!! og búa
fyrir ofan mig. Fórum á Hooters um daginn, það var ágætur stemmari
annars bara búnar að vera djamma og spila og elda saman sem er mjög
skemmtilegt enda var ég hrædd um að finna aldrei jafn góða vini
og ég átti hérna fyrir jól!! skelli inn nokkrum myndum síðan ég kom
hingað. Annars bráðum ætlum við að skella okkur til BRATISLAVA með
bát og gista kannski á hosteli, veit ekki alveg hvort við munum
þora því en það kemur bara í ljós svo ætla ég kannski að fara
með Ósk til Heidelberg, en það verður ef ég á pening... og já mig
langar aftur til PRAQ it was hot!!!!

Annars, vona að þið séuð sátt
við að ég bætti upp bloggleysið með heví löngu bloggi, endilega
skiljið eftir comment elskurnar gaman að vita hvort einhver sé
að lesa þetta hehe kossar og knúsar.... ALEXANDRA
»
14.12.2006 07:33:11 / alexandra
Ég er ad fara ad koma heim
eftir 7 daga!! a naesta fimmtudag!!!!!!!! 
Á
naesta fimmtudag vakna eg kl 9 og vek colin og vid aetlum saman ut
a flugvoll, hann er svo saetur ad hjalpa mer med töskurnar minar
tvi eg er svo litil gömul kona Svo sit eg daudaspennt eftir ad
komast inn i flugvelina, en a medan tharf eg ad kaupa mer meira
ilmvatn, les chocholate zum frühstück og fae mer vonandi Bock bier!
nammnamm.... Svo lendi eg i Copenhagen og byd i 5 tima thar, en mer
til daegrastyttingar verdur gamall vinur thar a ferd, hann ingó
svo tha a eg mer spassafelaga til ad stytta timann, en eg tharf
einnig ad kaupa mer eyrnalokka i pilgrim...
Ég var ad fatta, liklega
manudur sidan eg bloggadi sidast, eins og eg sagdi tha biladi
tolvan, en hun er komin i lag, thad tharf bara ad hreinsa
lyklabordid og tvi er eg ekki hana neitt, hun bidur bara
spennt eftir ad komast i hendur Nyherja strakanna!
Hvad hefur verid i gangi ? ja,
eg gatadi a mer eyrun, and I am sooooooo hot! tisti og gret sma
og helt i hendina a Afi mer fannst thetta svo vont hehe! en thetta
er enntha frekar aumt, en eg ma skipta um eyrnalokk rett fyrir
adfangadag avuhu, mig hefur ALLTAF langad ad geta verid mer
eyrnalokka! svo thetta er svaka gaman fyrir mig.
Ég for a sound of music sidustu
helgi, var svaka spennt! vorum naestum tvi of sein en nadum finu
standandi plassum, ja btw haegt ad fa mida fyrir 3 evrur i stadinn
fyrir 40 og madur stendur bara, ekkert mal! ja Sound of music, THE
HILLS ARE ALIVE WITH SOUND OF MUSIC, söng Maria, og eg vard
svaka spennt madur! byrjadi ad syngja med, nei svo breyttist allt
yfir a THYSKU! tha var thetta sound of music a thysku
buhuhuhuhuhu!!! algorlega eydilagdi stemmarann, en vid afi heldum
honum uppi med ad syngja ur okkur hjortun ... eidelweiss eidelweiss
la la la la la la la ! u are sixteen going on seventeen bla bla
bla, vrum med textana med okkur ahh good times.
Sidustu helgi foru Afi og
breska gengid foru heim til bretlands, var thar mikil sorg a fer
en eg er bara bunad keep myself busy svo eg taki ekki eftir tvi,
enda saknar madur besta vin sins mikid, sama a um folkid heima bara
svo thid vitid that ha! Á manudaginn sidasta for eg i afmaelid
hja Önnu islensku, thad var voda gaman, forum a fancy cocktail bar,
sem heitir BarBar, what a coincidence! en thad var stud fekk mer
2 cosmopolitans, tharf ekki meira lengur til ad vera
fljugandi og svo forum vid heim til hennar ad kúra upp i sofa
og horfdum a Center stage og bordudum popp, thad var geggjad
thangad til eg sofnadi og missti af endinum, eins og alltaf
haha!
Núna er eg bara ad vinna a
fullu a hverjum degi, sidasti fridagurinn minn adur en eg kem heim
er a morgun, föstudag, thannig ad eg tharf ad kaupa sidustu
jolagjafirnar og klara ad pakka, oh eg er med svo mikid brothaett
og thad verdur allt ad fara i innritadan farangur! CRAP! en vonandi
faid thid heilar jolagjafir thessi jol, ekki gjafir sem tharf ad
lima saman haha ! en halftimi thar til eg tharf ad leggja
af stad i vinnunna!
Ciao! alexandra
»
23.11.2006 11:29:12 / alexandra
Á síðasta föstudag kom
Anastasia, vinkona Afís til Vínar og bjó hjá mér, sem var góð
tilbreyting að eignast skemmtilegan herbergisfélaga Tókum
túrista hringinn með henni og kíktum á Stephansdom, Hofburg,
Schloss Schönbrun, þau fóru í Donauturm og svo héldum við alltaf
náttfatapartý hjá mér eftir erfiða labbidaga !! Voða gaman allt
saman. Reyndar þurfti ég að vinna næstum alla síðustu helgi
þannig að ég missti af miklu eeeeen það gerir ekkert til, fékk
bara meiri pening og gat keypt nokkrar jólagjafir.
<---
anastasía í rauðu 
Á laugardaginn fór ég í
fyrsta sinn á Naschmarkt sem ég varð
fyrir svolitlum vonbrigðum, er víst voða frægur matvöru markaður
hérna en mér fannst hann bara ekkert spes! Gat samt fundið mér
jólasmákökur og keypti þar til að hafa þegar fólk kemur í
heimsókn... eða bara til að ég geti borðað þær sjálf múhahaha
Eftir markaðinn héldum við á jólamarkað niðrí bæ sem var
gullfallegur! Það er allt svo fallega skreytt hérna og jólaljós út
um allt. Við fórum öll og fengum okkur austurrískan
orangepunsch og Glühwein, sem var bara býsna gott þó ég segi sjálf,
mjög áfengt (enda hef ég ekki smakkað mikið af því hérna úti) og
mjööööög sætt, og já ef einhver veit hvernig maður segir
Rabbabari á ensku, endilega látið mig vita!! Svo fórum við í ýmsa
jólahattaleiki eins og sjá má fyrir neðan og það var svo gaman
:

Það er svo ótrúlega mikið af
fallegum handmáluðum jólakúlum til sölu sem ég dáleiðist alltaf af.
En rándýrar eru þær, vildi að ég þénaði meiri pening í vinnunni til
að geta gefið öllum þegar ég kem heim en knús verður víst að
duga fyrir suma.

Annars er bara búið að vera
brjálað að gera í vinnunni, fékk smá launahækkun sem munar öllu
tók suma 3 mánuði til að fá hana en ég er búnað fá hana eftir 1
mánuð, sem lofar góðu. Er farin að vera mun betri í þýskunni sem
er gott, nú er fólk farið að skilja mig miklu betur og mér líður
ekki eins og hálfvita lengur hehe ... das ist SÚPPPAHHH vinsælasta
setningin þessa dagana. Samt er ég búnað komast að því að
Vínar-þýskan er fáranlega ólík þeirri sem við lærðum í skólanum.
Nota önnur orð yfir suma hluti og svoliðis, ekkert skrítið að það
er búið að taka mig 2 mánuði að læra þýskuna hérna!
Í fyrrakvöld skelltum við
okkur í IKEA til að kaupa jólatré í fínu íbúðina Keyptum þetta
litla krúttulega jólatré, jólaseríur og jólakúlur og ég held að ég
hafi bara aldrei séð jafn flott jólatré ha! Skelli inn mynd af því
seinna þegar ég tek mynd hehe ... myndaóða konan ..
Í gærkvöldi fórum við út að
halda upp á afmæli Dans og fórum á Indverskan veitingastað. Ég
pantaði í sakleysi minu mild chilli rétt og hrísgrjón. En lítið
vissi ég um sterkleikan hans og sat þarna í angist, með kaldan
svita og kláraði 2 litra vatnskönnu næstum því haha algjör
aumingi... það var mikið hlegið að litla vitlausa íslendingnum, sem
mér fannst bara ekkert kúl ha. Ég, Afí, Lorraine og Dana skelltum
okkur eftir matinn til mín og sátum í kringum jólatréið með heitt
cappuchino á náttfötunum og borðuðum fínu smákökurnar sem ég keypti
á markaðnum, það var mjög jólalegt. Ég er svo að spá í að skella
mér á hnetubrjótinn í Staadsoperunni í desember. Verður þá annars
ballettinn sem ég sé hérna úti, ætli Sandra og hildí séu ekki
stoltar af mér Hinn hét Giselle, nema aðal ballerínan var ekki
að gera góða hluti, í loka atriðinu þá rak hún hausinn í krossinn á
gröfinni sinni þegar hún var að kyssa hann haha og það heyrðist
stórt dönk og krossinn datt hahaha greyið, hefur verið illilega
vandræðalegt fyrir hana! Enda var þetta frumsýningin, og það var
skipt um dansara fyrir næstu sýningu...not good.
Annars bið ég að heilsa
krúttin mín, sakna ANTM kvöldana svaka mikið væri alveg
til í eitt núna. Og gangi ykkur vel í prófunu, you can do
it!
Ciao, jólabarnið kveður að
sinni :* !!

»
10.11.2006 13:15:23 / alexandra
Elsku
vinir, þið getið verið fegin því að ég hef ekki breyst mikið
á dvöl minni í Vínarborg... borg óttans ???
Nýjustu lýsingar af mér, bréf frá Afí til
Kalla:
Mr K,
I'm deeply scared and upset by your lady young man!
I mean, first of all, she attempts to beat me out with a kitchen
cupboard door! I mean - 'whoosh!' and down comes the door, barely
missing my cute little head! Dayum! She scurrry!
Secondly, later, after my shock and subsquent heart attack, i gain
my strength and and energy back, then the cheeky hora puts the cam
on me while i do an impromtu dance to a latin song i think, oh i
can't remember! Oh she a terrible woman! Hehe
Later
A

Og eftir
skemmtilega bæjarferð í gær :
Mr K,
A few more points...
Tell our hora, that I will sleep where I please, namely hers,
yours, whereever I am welcome, naturally. But the best would be if
I got a hot offer from a certain sexy person in Iceland (You know
what I'm Tawkin' about! Gimme Sum of Dat! lol, then of course, I'd
have to take the other offer! )
Ahem, where was I? Oh yeah! I will try to keep a leash on our
hora, but I'm afraid that will have limited success, cos she is
rather horrid and continues to try to damage me physically! Like
poke me in general, and knee me on the back of my knees so i
buckle! What a horrid child! And oh, when I try to retaliate, like
push her on the shoulders/arm, she moves so i accidently brush
against her boobbillies! LOL!
Please do dicipline this unruley girl of yours! I await your
judgement in great anticipation, and i'll have a cookie ready to
eat while I read your response! lol.
I fear I've written FAR too much, I blame my tiredness
really...
Ciao! A
Já, alltaf sama
stuðið hérna í bæjarblokkinni, fór í gær út til að kaupa 20ugs
afmælisgjöf handa Rósu, sem tók mest allan daginn og ég endaði á að
kaupa bara part af henni damn it! It is too hard, þarf líka að fara
senda hana, fólkið hérna vinnur svo hægt að það gæti tekið gjöfina
mánuð á leiðinni hehe en ég fann eitthvað sætt, og Rósa þú
verður að afsaka jólapappírinn sem gjöfin verður í, get ekki betra
en það atíhíí!
Kveðja frá Vín, auf Wiedersehen.
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|